Erna Rut: Sátt þótt ég hafi bara fengið eina manneskju til að breyta viðhorfi sínu
Nýstúdent kallar eftir fræðslu um kynjafræði meðal nemenda og kennara í framhaldsskólum. Hún segir afar neikvætt viðhorf finnast í garð femínista meðal beggja hópanna.„Karlrembustælar voru áberandi meðal margra eldri karlkynskennara. Mér finnst það ekki í lagi því kennararnir eiga að vera fyrirmyndir," segir Erna Rut Rúnarsdóttir frá Seyðisfirði sem í vor útskrifaðist frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Hún var meðal frummælenda á hádegisverðarfundi sem haldinn var á kvennafrídaginn á Seyðisfirði. Þar sagði hún meðal annars frá heimsókn baráttukonunnar Hildar Lillendahl í skólann.
„Mig langaði að taka krakkana og hrista þá til eftir hann. Þau hlustuðu ekkert á Hildi, ranghvolfdu augunum og virtust líta niður á hana. Stelpurnar voru ekkert betri en strákarnir."
Erna Rut leitaði uppi félagsskap femínista í skólanum og svo fór að hún varð varaformaður félagsins. Hún lýsti því sem létti þegar slík félög skutu upp kollinum í fleiri skólum og kallaði eftir aukinni kynjafræði í skólum.
Hún rifjaði einnig viðhorfið sem hún hefði fundið hjá vinkonum sínum heima á Seyðisfirði. „Við fórum á rúntinn og vorum að tala um vin okkar sem er formaður femínistafélagsins á Bifröst. Hún talaði um að henni þætti það asnalegt því femínistarnir væru ógeðslega leiðinlegir.
Hún var vandræðaleg þegar ég sagði: „Já, en þú veist að ég er formaður femínistafélags?" Ég er sátt við mitt þótt ég hafi bara fengið eina manneskju til að breyta viðhorfi sínu."