Styðja tónlistarkennara í verkfalli
Starfsfólk Verkmenntaskóla Austurlands sýndi tónlistarkennurum í verkfalli stuðning sinn í verki með því að bjóða kennurum úr Tónskólanum í Neskaupstað í samstöðukaffi í morgun.Starfsfólk skólans tók höndum saman og hafði útbúið veisluborð og tók vel á móti á móti stéttarsystkinum sínum. Verkfall tónlistarkennara hefur nú staðið í sléttar tvær vikur.
Tónlistarkennurum hefur borist stuðningur víðar að því kennarafélag Fjölbrautarskólans í Austur-Skaftafellssýslu lýsti nýverið yfir stuðningi við tónlistarkennara og skoraði á viðsemjendur þeirra, sveitarfélögin, að koma til móts við „réttlátar kröfur þeirra í launamálum."
Þá hefur kennarafélag FAS einnig mótmælt fyrirhugaðri skerðingu náms til stúdentsprófs og takmörkun á aðgangi eldri nemenda að námi í framhaldsskólum.
Félagið telur fækkunina koma harðast niður á fámennari skólum á landsbyggðinni og sért vart að þeir lifi af svo harðar aðgerðir. Þá hafi þeir einnig neikvæð áhrif á menntunarstig á landsbyggðinni.
„Hér er að eiga sér stað viðsnúningur í menntapólitík á landinu þar sem stór hópur ungs fólks sem vill ganga menntaveginn er útilokaður frá framhaldsskólum landsins og veitt inn í dýrari úrræði og torveldari.
Þetta er sérstaklega alvarlegt fyrir ungt fólk á landsbyggðinni sem hefur fá önnur úrræði að sækja sér menntun en framhaldsskólana," segir í yfirlýsingu kennarafélagsins.
„Styrkur íslenska framhaldsskólans hefur verið sveigjanleiki þar sem komið er til móts við þarfir mismunandi nemenda.
Framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa þjónað nemendum af landsbyggðinni sem ella þyrftu að fara um langan veg til að afla sér menntunar.
Framhaldsskólar á Íslandi eru með þeim ódýrari í samanburðarlöndum okkar og vart séð að aðgerð sem þessi muni spara fjármagn til lengri tíma litið."