Ein stærsta framkvæmd Fjarðabyggðarhafna
Eins og kom fram á vef Fjarðabyggðar fyrir skemmstu hefur stækkun Norðfjarðarhafnar gengið vel. Framkvæmdin er á áætlun og verður lokið við þriðja og stærsta verkhlutann í desember næstkomandi.Ráðist var í stækkun Norðfjarðarhafnar í ljósi vaxandi umsvifa, sem hafa smám saman verið að sprengja núverandi umgjörð utan af sér, en höfnin er ásamt Vestmannaeyjarhöfn stærsta fiskihöfn landsins í lönduðum afla.
Meðal þess sem framkvæmdirnar fela í sér er flutningur smábátahafnar, færsla á varnargarði og lenging á stálþili.
Verkhlutar eru alls fimm og verður hafist handa við fjórða og fimmta hlutann á næsta ári. Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki næsta haust.
Framkvæmdin er ein sú stærsta sem Fjarðabyggðarhafnir hafa tekist á hendur og nemur fjárfesting hafnanna í verkinu um 600 milljónum króna.