Yfir fjörutíu þúsund manns upp að Hengifossi í sumar
Yfir 41 þúsund manns gengu upp að Hengifossi í sumar samkvæmt talningum. Framkvæmdir hafa staðið yfir á svæðinu til að bæta aðgengi ferðamanna.Talningarhlið er á göngustígnum upp að fossinum og samkvæmt nýjustu fundargerð hreppsnefndar Fljótsdalshrepps fóru tæplega 41.600 manns í gegnum hliðið frá 8. maí til 21. október.
Sá fyrirvari er gerður að fari margir í gegnum hliðið í óslitinni röð, eins og þegar gönguhópar eru á ferð, mælist fjöldinn illa. Því er líklegt að heildartalan sé hærri. Ljóst sé þó að í sumar hafi verið mjög fjölmennt á svæðinu.
Framkvæmdir hafa staðið yfir á svæðinu í sumar en borað var eftir vatni neðan við bílastæðið en erfitt hefur verið að fá vatn í salerni á svæðinu. Styrkir hafa fengist úr framkvæmdasjóði ferðamanna sem nýttir hafa verið í að skipuleggja svæðið og bæta göngustíga.
Þá voru starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs á sveimi í sumar, könnuðu viðhorf ferðamanna og veittu upplýsingar um svæðið.