Norðfjarðargöng: Ár liðið frá fyrstu sprengingu

nordfjardargong bomba hanna birna webÍ dag, 12. nóvember 2014, er liðið eitt ár frá fyrstu sprengingunni á stafni Norðfjarðarganga. Framan af var eingöngu grafið Eskifjarðarmegin og var búið að grafa tæpa 900 metra þeim megin, áður en byrjað var að sprengja í Fannardal.

Fyrsta sprenging Norðfjarðarmegin var 6. mars. Þá var þykkt setbergslag að koma á stafninn í Eskifirði og hægði það verulega á framvindu í nær 2 mánuði, áður en framvindan jókst á ný.

Nýlega var svo aftur farið í gegnum svipað setbergslag. Það krafðist svipaðra styrkinga og hið fyrra, en það hvarf fyrr upp úr þekjunni og tafir urðu minni af völdum þess.

Á þessu ári sem liðið er frá fyrstu sprengingu hafa alls verið grafnir út um 4.190 metrar af göngunum, eða um 55,5%, um 2.410 m (32%) Eskifjarðarmegin og 1.780 m (23,5%) Norðfjarðarmegin. Alls eru þetta um 320 þúsund rúmmetrar af losuðu efni, eða tæplega 20.000 vörubílshlöss.

Í Fannardal hefur efnið m.a. nýst í vegagerð og er vegfylling komin út undir Kirkjuból í Norðfirði. Eskifjarðarmegin hefur mikið efni verið keyrt í landfyllingar meðfram Eskifjarðará og nú er unnið að landfyllingum austan Norðfjarðarvegar.

jan122013 4
jan21012013 2
feb05022014 3
feb03022014 3
mars07032014 1
mars20032014 3
mars 25032014 3
mars 25032014 4
april09042014
april24042014 1
april30042014 2
juni03062014 2
agust07082014
september 03092014 1
oktober 20102014 1 web
nordfjardargong bomba 0063 web

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar