Einn fluttur á sjúkrahús eftir árekstur fólksbíls og vörubíls
Ökumaður fólksbíls var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar eftir árekstur fólksbíls og vörubíls rétt utan við Egilsstaði í hádeginu í dag. Gríðarleg hálka var á svæðinu þegar slysið varð.Slysið varð á Seyðisfjarðarvegi, rétt utan við Eyvindará. Ökumaður fólksbílsins handleggsbrotnaði og hlaut fleiri áverka og var fluttur á sjúkrahús en ökumaður vörubílsins slapp ómeiddur.
Báðir bílarnir eru illa farnir, fólksbíllinn ónýtur og vörubíllinn mikið skemmdur.
Lögreglan rannsakar tildrög slyssins en veruleg ísing var á veginum þegar slysið varð og varla stætt á veginum.