Farið yfir árfarvegi eftir vatnavexti
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar undirbýr nú úttekt á stöðu árfarvega í sveitarfélaginu. Dæmi eru um að flætt hafi inn í hús í miklum vatnavöxtum í síðustu viku.„Það hafa verið hér gríðarlegar rigningar og hlýindi. Þeim hafa fylgt leysingar því það var búið að snjóa í fjöll og þetta hefur orðið til þess að ár og lækir hafa vaxið mikið," segir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri.
Bæjarráð ákvað í byrjun vikunnar að fela framkvæmdasviði að ráðast í úttektina og meta hvar þurfi að bregðast við, til dæmis með dýpkun.
„Við höfum haft spurnir af því að vatn hafi farið inn í hús og teljum fulla ástæðu til að fara yfir hvort fara þurfi inn í árfarvegi."
Sveitarfélagið stendur þó ekki eitt að málinu því haft verður samstarf við fleiri aðila, svo sem Vegagerðina. „Við búum í fjörðum þar sem er mikið af lækjum og litlum ám sem geta vaxið."
Hann segir hættumat, til dæmis vegna aurflóða, liggja fyrir á flestum stöðum en bæjarráðið hafi samt kosið að láta fara yfir stöðuna.
Dregið hefur úr rigningunni í vikunni og er vatnið því víðast hvar sjatnað.
„Tíðin hefur verið óvenjuleg. Í fyrra var búið að opna skíðasvæðið á þessum tíma en þar er enginn snjór núna."