Tónlistarkennarar: Getum ekki selt það sem við höfum ekki
Tónlistarkennarar í Fjarðabyggð segjast hafa fengið blendin skilaboð frá bæjarstjórn Fjarðabyggðar eftir mótmælagöngu í gær. Þeir segja sveitarfélögin ekki bjóða raunverulegar launahækkanir.„Þetta gekk vel og það bættust sífellt fleiri í hópinn," segir Gillian Haworth, skólastjóri Tónlistarskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar.
Hún áætlar að yfir sextíu manns hafi slegist í lið með tónlistarkennurum sem fóru í mótmælagöngu fyrir fund bæjarstjórnarinnar í gær.
Hún segir viðbrögð bæjarstjórnarinnar hafa verið „bland í poka." Meirihlutinn hafi skýlt sér á bakvið samninganefndina en minnihlutinn veitt „mikinn og góðan stuðning." Þar hafi komið fram efi um getu samninganefndar sveitarfélaganna til að ná samningum þar sem verkfall kennaranna hefur staðið í rúmar fjórar vikur.
Það mun standa eitthvað lengur þar sem forsvarsmenn tónlistarkennara höfnuðu í dag samningstilboði sem samninganefnd sveitarfélaganna lagði fram í gær. Ekki verður fundað aftur fyrr en á mánudag.
Tónlistarkennarar hafa krafist launahækkana til jafns við aðra kennara undanfarin misseri. Sveitarfélögin hafa á móti farið fram á breytingar á vinnu tónlistarkennara í líkingu viðaðra kennara.
Gillian segir það erfitt. „Við getum ekki selt það sem við höfum ekki, svo sem aldursafsláttinn. Sveitarfélögin vilja stytta skólaárið sem þýðir fleiri vinnutíma í hverri viku. Meiri vinna er ekki launahækkun."
Hún lýsir stöðunni sem „mjög dapurlegri. Mér sýnist að samfélagið verði að setja pressu á stjórnmálamennina um að semja."