Vonast til að nýta fyrrum fiskvinnsluhús í tengslum við uppbyggingu laxeldis
Forsvarsmenn Laxa fiskeldis hafa safnað um einum milljarði króna í hlutafé til uppbyggingar á Austfjörðum. Þeir hafa áform um að rækta allt að 25.000 tonn af laxi sem myndi gera fyrirtækið að stærstu eldisstöð landsins.Frá þessu er greint á fiskveiðivefnum Undercurrent News. Þar segir að fyrirtækið hafi tryggt sér um 60 milljónir norskra króna, rétt ríflega einn milljarð króna, í fjármagn frá tveimur aðilum sem hafi reynslu af norsku laxeldi.
Áformað sé að byggja upp seiðastöð, kvíar á þremur stöðum og einfalda vinnslu. Haft er eftir forráðamönnum Laxa að gömul fiskvinnsluhús sem standi auð á svæðinu geti nýst vel fyrir starfsemina.
Byrjað verði á 6.000 tonna framleiðslu á ári sem geti vaxið í 25.000 tonn á ári á meðan aðrir framleiður framleiði 10-12 þúsund tonn.
Í fréttinni segir að Laxar hafi sótt um leyfi fyrir eldið í Berufirði og Fáskrúðsfirði og bíði eftir svari frá skipulagsyfirvöldum.
Haft er eftir forsvarsmönnum Laxa að þeir stefni á Kínamarkað og þar komi fríverslunarsamningur Íslands og Kína í góðar þarfir. Ekki stendur til að framleiða árið um kring heldur leggja áherslu á slátrun fyrir jól og páska til að fá sem best verð á mörkuðum.
Laxeldi í Berufirði. Mynd: Guðný Gréta Eyþórsdóttir