Sést varla á milli húsa og þakplötur farnar að fjúka
Aftakaveður er á Austfjörðum í dag og útlit fyrir að vindur muni enn aukast út við ströndina. Björgunarsveitir hafa verið á ferðinni í morgun en almennt virðist fólk halda sig heima.Björgunarsveitin Eining á Breiðdalsvík var í hádeginu kölluð að bænum Krossi í Berufirði þar sem þakplötur voru farnar að fjúka af hlöðu.
Þá var björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðsfirði einnig kölluð út til að festa plötur sem voru farnar að losna.
Á Egilsstöðum aðstoðaði björgunarsveitin Hérað við vaktaskipti á heilbrigðisstofnun og lögreglu í útköllum. Ekki er fært fyrir fólksbíla innanbæjar en þó nokkrir ökumenn hafa þurft hjálp eftir að hafa fest sig á götunum.
Á Héraði hefur vindinn örlítið lægt en hann aukist að sama skapi á fjörðunum. Á Reyðarfirði sér ekki lengur á milli húsa.
Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði aðstoðaði við matardreifingu til ellilífeyrisþega. Þar er blindbylur, sér vart milli húsa og ófært innanbæjar fyrir fólksbíla.
Í Hamarsfirði hafa mælst hviður upp á 70 m/s.