Póstbíllinn þversum í Grænafelli
Flutningabíll frá Íslandspósti á leið með póst frá Egilsstöðum til Reykjavíkur lenti þversum neðst í Grænafelli á leiðinni á áttunda tímanum í kvöld.Þær upplýsingar fengust hjá póstinum að atvikið hefði ekki verið alvarlegt, bíllinn hefði runnið til í hálku og setið fastur.
Hann verður dreginn upp á eftir og á að komast á leiðarenda í nótt þannig að ekki verður röskun á dreifingu póstsins.
Mynd: Adam Eiður Óttarsson