Lækkun olíuverðs fjölgar ódýrari flugsætum
Flugfélag Íslands hyggst kynna viðbrögð við lækkandi eldsneytisverði á næstu dögum. Þegar hefur ódýrari flugsætum verið fjölgað.Þetta kemur fram í svari Árna Gunnarssonar, forstjóra Flugfélags Íslands, í svari við fyrirspurn Austurfréttar um hvort lækkandi heimsmarkaðsverð á olíu skili sér ekki til flugfarþega.
„Við höfum brugðist við með því að fjölga þeim sætum sem við erum með í boði á lægra verði en erum jafnframt að skoða frekari viðbrögð við þessum breytingum og munum kynna það á næstu dögum," segir Árni.
Olíukostnaður nemur um 16% af heildarrekstrarkostnaði Flugfélagsins. „Vissulega vegur lækkun olíuverðs inn í reksturinn.
Það er þó rétt að hafa í huga að við eins og mörg önnur flugfélög verjum okkur gegn sveiflum í eldsneytisverði og því koma bæði hækkanir og lækkanir fram seinna í okkar rekstri en án slíkra varna."