Fjarðabyggð til framtíðar: Vitum að það eru miklar skoðanir um málin
Í kvöld byrjar þriggja daga fundaferð á vegum sveitarfélagsins Fjarðabyggðar í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins undir yfirskriftinni „Fjarðabyggð til framtíðar." Það verður stefna sveitarfélagsins í ýmsum málaflokkum rædd með íbúum. Bæjarstjórinn segir vilja til að nýta betur þá krafta sem sveitarfélagið bjóði upp á.„Við teljum að við þurfum að ná auknum árangri í rekstri sveitarfélagsins því við þurfum svigrúm til framkvæmda í stækkandi samfélagi svo við getum tekist á við óvænta atburði.
Sveitarfélagið er á fínum stað en við þurfum að gera betur, einkum þegar horft er til A-hluta sveitasjóðs. Við vitum að það eru miklar skoðanir um þessi mál og við viljum fara í kjarnana fimm til að heyra skoðanir íbúanna," segir Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri.
Við fjárhagsáætlanagerð í haust fór af stað töluverð umræða um fjármál sveitarfélagsins, sérstaklega eftir hugmyndir um breytingar í skólamálum voru kynntar. Horfið var frá þeim flestum í bili en ákveðið að fá KPMG til að vinna heildarúttekt á rekstri sveitarfélagsins.
Skipt verður upp í málefnahópa á fundunum en sérstök áhersla verður lögð á skólamálin og leiðir Ingvar Sigurgeirsson, sérfræðingur hjá Skólastofunni, þá vinnu.
„Við ræðum alla málaflokka en fáum sérfræðing í skólamálin enda taka þau um helming skattfjárins," segir Páll Björgvin um aðkomu Ingvars sem mun heimsækja skólana í Fjarðabyggð í vikunni.
Gert er ráð fyrri að KPMG skili tillögum sínum í byrjun mars. „Við viljum hafa samráð við íbúana og heyra hvaða skoðanir þeir hafa til að mynda sameiginlega sýn í sameinuðu sveitarfélagi. Við viljum ná enn meiri árangri í rekstrinum og nýta betur þá krafta sem sameinað sveitarfélag býður upp á."
Fundirnir verða sem hér segir:
20. janúar
Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar, 17:00-19:00
Grunnskóla Stöðvarfjarðar 20:00-22:00
21. janúar
Grunnskóla Reyðarfjarðar 17:00-19:00
Grunnskóla Eskifjarðar 20:00-22:00
22. janúar
Nesskóla 20:00-22:00