Eldur kviknaði í baðherbergi
Slökkviliðið á Egilsstöðum var kallað út upp úr klukkan þrjú í dag vegna elds í baðherbergi í íbúðarhúsi í bænum.Að sögn Baldurs Pálssonar, slökkviliðsstjóra, var baðherbergið alelda þegar að var komið. Útlitið hafi ekki verið gott því eldurinn hafi verið að læsa sig í útvegg og á leið í þakið.
Vel gekk að ná tökum á eldinum, hindra frekari útbreiðslu og slökkva. Húsið er timburhús og mikið skemmt af völdum elds, reyks og vatns.
Lögreglan rannsakar eldsupptök.