Mannbjörg er Steinaborg í Berufirði brann til grunna
Mannbjörg varð er býlið Steinaborg í Berufirði brann til grunna seinni partinn í dag. Húsið var alelda er slökkvilið kom á staðinn.Útkall barst slökkviliði Djúpavogs klukkan 17:27 og voru allir bílar og tiltækt lið staðarins ræst út auk þess sem kallað var út slökkviliði Breiðdalsvíkur. Þau komu á staðinn um svipuðum tíma um hálftíma síðar.
„Þegar við komum á staðinn sáum við að húsið var alelda og eiginlega hrunið," segir Kári Snær Valtingojer, varaslökkviliðsstjóri slökkviliðs Djúpavogs.
„Það var mjög stíf norðnorðvestanátt og eldurinn breiðist hratt út í svona timburhúsum við svona aðstæður."
Á meðan ekið var á staðinn bárust upplýsingar um að húsráðandi hefði komist út úr húsinu ásamt hundinum sínum. Hann hefur fengið inni á bæ í nágrenninu.
Kári segir að erfitt hafi verið að komast upp að bænum en Steinaborg en enginn hafði búið þar í um hálfa öld þar til ungur maður fluttist þangað í sumar.
„Það er eiginlega engin heimreið að bænum og við vorum ekki að hætta okkar þungu bílum út á túnið."
Lítið varð því úr eiginlegu slökkvistarfi en safnað var saman eigum húsráðanda sem hann hafði náð að koma út og vettvangurinn tryggður, meðal annars með að hefta járnplötur sem voru að fjúka.
Líklegast er talið að eldurinn hafi kviknað út frá kamínu. Ekki var rafmagn í húsinu.