Fróðleiksfundi frestað
Fróðleiksfundi KPMG um skattamál, sem halda átti á Egilsstöðum í dag, hefur verið frestað um viku vegna veðurs.Allt innanlandsflug hefur legið niðri í morgun og því komast ekki allir frummælendur á staðinn. Nýr fundartími er á þriðjudaginn eftir viku, 17. febrúar klukkan 16:00 á Hótel Héraði.