Ferðamenn dregnir upp úr Austdalsá
Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð út nú síðdegis þegar beiðni um aðstoð barst frá tveimur erlendum ferðalöngum sem fest höfðu bílaleigubíl sinn á leiðinni í Skálanes, nánar tiltekið í Austdalsánni.Björgunarsveitin fór þegar á staðinn. Þegar þangað var komið höfðu ferðamennirnir náð að koma sér sjálfir upp á bakkann hinu megin en bíllinn var enn í miðri ánni.
Björgunarsveitin dró bílinn upp á bílaplan við ánna og sótti ferðafólkið yfir ánna. Það var heilt á húfi og verður flutt til Seyðisfjarðar.