Samband komið aftur á hjá Nova

Viðgerð er lokið á bilun sem varð í dreifikerfi Nova þannig að samband viðskiptavina í Neskaupstað og Eskifirði datt út klukkan níu í gærkvöldi.


Farsímanotendum er bent á að endurræsa síma sína ef þeim gengur illa að ná sambandi.

Þær upplýsingar fengust hjá Nova að bilun hefði komið upp í grunnkerfi þannig að sendar fyrir svæðin náðu ekki sambandi.

Nova biður viðskiptavini sína afsökunar á þeim óþægindum sem sambandsleysið hefur valdið.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar