Ekki rétt að fara í sameiningar í kjölfar neikvæðrar könnunar
Meirihluti hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps felldi á síðasta fundi tillögu minnihlutans um að óska eftir aðild að viðræðum fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi um sameiningu. Íbúakönnun sem gerð var í vor sýndi ekki vilja Vopnfirðinga til sameiningar.Fulltrúar Samfylkingarinnar, sem er í minnihluta, lögðu á fundinum fram tillögu um að hreppurinn sækti um að taka þátt í sameiningarviðræðum Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Borgarfjarðarhrepps og Djúpavogshrepps.
Í rökstuðningi með tillögunni kemur fram að fulltrúarnir telji þetta rétt skref, meðal annars í ljósi ráðherra sveitarstjórnarmála um að eftir 4-8 ár kunni sveitarfélög með færri en 1000 íbúa að vera sameinuð með lögum. Fulltrúarnir telji einnig að jákvæð áhrif sameiningar yrðu meiri en þau neikvæðu.
Vopnafjörður hefur verið í samstarfi við sveitarfélögin fjögur um brunavarnir og félagsþjónustu síðustu ár. Á grundvelli þess samstarfs fóru í gang viðræður síðasta vetur um frekara samstarf sem endaði með skoðanakönnun sem er forsenda viðræðnanna núna.
Þar lýstu hins vegar 59% þeirra Vopnfirðinga sem svöruðu andstöðu sinni við sameiningu. Í bókun meirihluta Framsóknarflokks og Betra Sigtúns er vísað til þeirrar niðurstöðu. Út frá henni sjái meirihlutinn ekki ástæðu til að fara í viðræður á þessum tímapunkti.
Í annarri bókun lýsa fulltrúar minnihlutans yfir vonbrigðum sínum og segja afstöðu meirihlutans speglast af þröngsýni og einangrunarhyggju.