Full ástæða til að taka veðrið alvarlega
Almannavarnir á Austurlandi beina því til fólks að vera sérstaklega ekki á vegum úti á kvöldin eða nóttunni í ljósi óveðurs sem spáð er næstu daga. Búið er að lengja í viðvörunum vegna þess.Veðurstofan gaf í gær út appelsínugula viðvörun fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði. Viðvörunin tekur gildi klukkan 17:00 í dag og átti að gilda til miðnættis á morgun, þriðjudag. Hún hefur nú verið lengd út miðvikudag.
Þá tekur við gul viðvörun sem gildir til föstudagsmorguns. Hún getur enn breyst en líkur á að spár rætist hafa áhrif á litakóðann, en öryggið eykst þegar nær dregur. Búið er að ákveða að loka Möðrudalsöræfum og Vopnafjarðarheiði frá klukkan 20:00 í kvöld og leiðinni milli Djúpavogs og Hafnar frá klukkan 21:00. Staðan verður endurmetin eftir klukkan níu í fyrramálið. Viðbúið er að fleiri leiðir geti lokast.
Spáð er miklum norðvestan vindi, sem verður mest syðst á Austfjörðum. Honum fylgir úrkoma sem fellur sem rigning eða slydda út við ströndina en snjókoma inn til landsins. Hvassast verður syðst á Austfjörðum en á móti eru taldar minni líkur á úrkomu sunnan Fjarðarheiðar.
Tilmælum hefur verið beint til íbúa og ferðafólks um að vera ekki á ferðinni að óþörfu, festa lausamuni og koma dýrum í skjól. „Þetta er veður sem er full ástæða til að taka alvarlega. Það minnir helst á vont vetrarveður, þótt að sumri sé,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi.
„Við höfum hvatt fólk til að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum. Það er útlit fyrir að það verði lítið ferðaveður fyrr en á föstudag. Við ráðleggjum því fólki að vera lítið á ferðinni, sérstaklega ekki á kvöldin eða nóttinni. Yfir daginn er snjóbráð þannig að ástæður skána.“
Hann segir viðbragðsaðila, einkum Vegagerðina, hafa nýtt daginn til að undirbúa það sem koma skal.
Kynningu á skýrslu um kolefnisspor Austurlands, sem halda átti í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði á morgun, hefur verið frestað um viku.