Hringvegurinn lokaður í Berufirði

Hringvegurinn í Berufirði er lokaður þar sem vatn og aur hafa flætt yfir hann við Fossá. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að tæki séu á staðnum og verði vegurinn opnaður eins fljótt og kostur sé á.

Rignt hefur hraustlega á Suðausturlandi síðan í gær og hefur vatnsyfirborð Fossár hækkað um rúma tvo metra síðan klukkan átta í gærkvöldi.

Áfram er útlit fyrir rigningu næstu daga.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar