Í einangrun í vinnubúðum uppi á fjöllum
Ekki er talið að farþegar Norrænu hafi átt það á ættu að smitast af einstaklingi sem greindist með Covid-19 smit við sýnatöku er hann fór um borð í ferjuna á þriðjudag. Maðurinn og ferðafélagar hans fara beint í einangrun í vinnubúðir á hálendinu.Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands en Norræna kom til Seyðisfjarðar í morgun. Um borð voru 730 farþegar.
Einn þeirra hafði greinst jákvæður af Covid-19 við sýnatöku í Hirtshals í Danmörku þaðan sem ferjan fór á þriðjudag. Fimm aðrir voru með honum í för og reyndust allir neikvæðir við sömu sýnatöku.
Sexmenningarnir voru allir í einangrun á leiðinni yfir hafið. Ekki er talið að aðrir farþegar hafi verið útsettir fyrir smiti.
Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Austurlands tóku á móti ferðafélögunum á Seyðisfirði í morgun og leiðbeindu þeim um hvernig þeir eigi að hegða sér fyrst í stað. Mennirnir komu hingað til lands til að starfa á hálendinu og dvelja þar í vinnubúðum. Þeir verða þar í einangrun þar til frekari niðurstöður liggja fyrir.Sýni verður tekið úr hinum smitaða síðar í dag til að kanna hvort um gamalt smit sé að ræða. Frekari ráðstafanir um einangrun bíða niðurstöðu úr þeirri sýnatöku.