Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri Fjarðabyggðar lætur af störfum

Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri Fjarðabyggðar hefur óskað eftir að láta af störfum. Samþykkt hefur verið að verða við ósk Karls Óttars og hefur hann þegar lokið störfum.

Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að sveitarfélagið þakki Karli Óttari vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni. Bæjarráð Fjarðabyggðar fundar síðdegis í dag og mun senda frá sér yfirlýsingu að loknum fundi.

Karl Óttar tók við starfi bæjarstjóra sumarið 2018 eftir sveitarstjórnarkosningar en að þeim loknum tók við meirihluti Framsóknarflokks og Fjarðalista. Hann var áður yfirlögfræðingur Arion banka.


Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.