Kviknaði í út frá eldavél
Talsverðar reykskemmdir urðu á íbúðarhúsnæði á Djúpavogi þar sem eldur kom upp rétt upp úr klukkan tíu í gærkvöldi. Húsráðandi náði sjálfur að slökkva eldinn áður en aðstoð barst.Slökkviliðið á Djúpavogi var kallað út klukkan 22:05 í gær vegna eldsins. Þegar slökkviliðið kom á staðinn hafði húsráðandi náð að slökkva sjálfur eldinn með slökkvitæki. Slökkviliðið vaktaði svæðið fram á nótt þar til lögregla tók við vettvanginum.
Allar líkur eru taldar á að kviknað hafi í út frá eldavél. Snjólfur Gunnarsson, varðstjóri hjá Brunavörnum á Austurlandi sem stýrði slökkvistarfinu í gærkvöldi, segir að eldurinn hafi verið staðbundinn við eldavélina.
„Það eru töluverðar reykskemmdir á húsinu en ekki brunnið að ráði nema í eldhúsinu. Það var mikill reykur og þetta hefði getað farið illa.“
Húsráðandi var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl til öryggis vegna hugsanlegrar reykeitrunar.