Leitað að bíl eftir innbrot á Reyðarfirði
Lögreglan á Austurlandi lýsir eftir litlum sendiferðabíl með númerið KSA93 eftir innbrot á Reyðarfirði aðfaranótt miðvikudags.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var brotist inn í verslunina Djáknann á Reyðarfirði, sem opnaði í byrjun nóvember í gömlu Shell-stöðinni.
Farið var inn um bakdyr og tekið talsvert af verðmætum auk bílsins.
Hann er tíu ára gamall, dökkblár á litinn af gerðinni Fort Transit Connect með númerið KSA93.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir bílsins eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Austurlandi í síma 444-0630 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..