Mesta bongóblíða sumarsins á Vopnafirði
Mesta bongóblíða sumarsins ríkir nú á Vopnafirði. Hitinn þar í augnablikinu er rúmar 23 gráður og logn og segir Fanney Hauksdóttir eigandi verslunarinnar Kauptúns að hún muni ekki eftir öðrum eins hita í sumar.Hitanum fylgir mistur í augnablikinu en kannski nær sólin í gegn síðdegis. Fanney segir að margir ferðamenn séu staddir í bænum þessa stundina og brjálað að gera.
Um hádegið fór hitinn í 24,6 gráður á Skjaldþingsstöðum er er hæsti hiti sem mælst hefur á landinu, samkvæmt tölum Veðurstofu Íslands. Veðrið hefur leikið við Vopnfirðinga það sem af er vikunni en þetta er þriðji dagurinn í röð þar sem hitinn fer þar yfir 20 gráður.
Fanney og Eyjólfur Sigurðsson sem reka Kauptún. Mynd úr safni.