Rjúpnaskyttan fundin

Rjúpnaveiðimaðurinn sem leitað hefur verið að síðan á föstudagsmorguninn er fundin heill á húfi.

Björgunarsveitamenn á vélsleðum fundu manninn þar sem hann var á gangi með hundi sínum á austanverðum Ketilsstaðahálsi upp úr klukkan tíu í morgun.

Maðurinn var vel á sig kominn þegar hann fannst, en kaldur.

Björgunarsveitamenn hlúðu að mannium á fundarstaðnum að þar til þyrla Landhelgisgæslunnar kom á staðinn og flutti manninn til byggða.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar