Sambandsleysi enn á 124 kílómetra kafla á stofnvegum landsins

Ekki stendur til að svo stöddu að byggja upp og bæta fjarskiptasamband á tengi- og héraðsvegum á landsbyggðinni en áherslan er lögð á að koma sambandi á á þeim stofnvegum landsins þar sem fjarskiptasambandið er lítið eða ekkert. Alls var sambandslaust eða sambandslítið á 124 kílómetra löngum kafla á stofnvegum landsins síðasta sumar.

Ofangreint kemur fram í svari Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-,  iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, við fyrirspurn á Alþingi um miðjan maí frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttir þingmanns Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Vildi þingmaðurinn vita hvað stjórnvöld hyggðust fyrir varðandi uppbyggingu fjarskiptasambands í dreifbýlinu.

Heimili í forgangi

Fram kom í máli ráðherra að ekki aðeins er enn sambandslaust að öllu leyti eða mestu á 124 kílómetra kafla stofnvega landsins, en stofnvegir kallast allir þeir vegir sem tengja saman byggðir landsins, heldur og búa ein 100 heimili og vinnustaðir á landsbyggðinni enn við að hafa ekkert aðgengi að fjarneti eða hafa aðgang að fjarneti sem ekki uppfyllir lágmarksskilyrði um alþjónustu.

„Við, í samstarfi við Fjarskiptastofu, hyggjumst ráðast í átak til að bæta fjarskiptasamband á þessum 100 stöðum á landinu. Við munum setja 50 milljónir í verkefnið í ár af þeim heimildum sem við höfum. [...] vonir standa til að það verði þá búið að bæta fjarskiptasambandið á öllum þessum stöðum innan mjög fárra ára.“

Á hluta stofnvega austanlands er samband takmarkað eða slitrótt þegar best lætur. Nægir þar að nefna punkta á stöðum á borð við Möðrudalsöræfi, Suðurfjarðaveg og firðina milli Djúpavogs og Hornafjarðar.

Annars staðar bið

Lilja Rannveig vildi einnig vita hvað ráðherra sæi fyrir sér með samband á tengi- og héraðsvegum og við vinsæla ferðamannastaði.

Íbúar víða á Austurlandi búa við mjög skert samband og hafa ítrekað óskað úrbóta. Til að mynda er fjarskiptasamband á Efra-Jökuldal afar takmarkað og stundum ekkert en þar er auðvitað Stuðlagilið sem er vinsælasti ferðamannastaður Austurlands og trekkir að tugþúsund ferðamanna ár hvert. Íbúar mun víðar, til dæmis í Fellum og Skriðdal, glíma við sama vandamál.

Ráðherra sagði þó engar áætlanir uppi um frekari uppbyggingu fjarskiptasambands á öðrum vegum en stofnvegum að svo stöddu.

„Ekki eru áform um sambærilega uppbyggingu á tengivegum eða héraðsvegum en slíkri uppbyggingu fylgir mikill kostnaður. Sú uppbygging væri mjög jákvæð fyrir mörg svæði en það er samkeppni um fjármagnið í fjarskiptum og í forgangi að tryggja fjölfarna vegi.“

Forsíðumynd frá Stuðlagili þar sem enn þann dag í dag getur verið næsta vonlaust að ná símasambandi. Myndin hér að ofan sýnir gildandi fjarskiptakort Fjarskiptastofu. Rauðu svæðin eru sambandslaus að mestu eða öllu leyti.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar