Tíu dagar frá síðasta smiti
Tíu sólarhringar eru nú liðnir frá því að síðast greindist Covid-19 smit á Austurlandi. Áfram fækkar þeim sem eru í sóttkví.Samkvæmt tölum á Covid.is eru nú sex virk smit í fjórðungnum en þau urðu flest sjö nú í fyrr í mánuðinum.
Átján einstaklingar eru í sóttkví en þeir voru 22 í gær. Þeim hefur fækkað hægt og bítandi síðustu daga.