Tóbakssölustöðum fækkar stöðugt á Austurlandi

Stöðum sem selja tóbak hefur fækkað stöðugt á Austurlandi undanfarin fimm ár. Þetta kemur fram í ársskýrslu Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir síðasta ár.

Í skýrslunni segir að alls höfðu 26 sölustaðir leyfi heilbrigðisnefndar til smásölu á tóbaki um síðustu áramót og hafa þeir ekki verið færri frá því að byrjað var að gefa tóbakssöluleyfin út. Til samanburðar voru leyfin 33 talsins árið 2015 og hefur fækkað á hverju ári frá þeim tíma.

Ekkert nýtt leyfi var gefið út árinu en sjö leyfi voru endurnýjuð. Tóbakssöluleyfi eru gefin út á grunni laga um tóbaksvarnir og gilda leyfin í 4 ár frá útgáfudegi.

Ennfremur segir að eftirlit með fyrirkomulagi tóbakssölu fer fram árlega, samhliða reglubundu eftirliti með viðkomandi sölustöðum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar