Töluvert tjón af völdum skemmdarverks
Brotist var inn í sundlaugina á Egilsstöðum og þar unnin skemmdarverk, aðfararnótt sunnudagsins. Um talsvert fjárhagslegt tjón er að ræða, að sögn starfsmanns, því væntanlega þarf að skipta um dúkinn í lauginn. Laugin er samt sem áður opin fyrir gesti og gangandi.Að sögn lögreglu voru þeir sem þarna stóðu að verki handteknir vegna málsins. Eftir skýrslutöku var þeim sleppt og telst málið upplýst.
Nokkur erill var hjá lögreglunni einkum vegna ónæðis. Þá voru 20 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur um helgina.