Austfirski tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson var valinn
textahöfundur ársins á íslensku tónlistarverðlaununum sem veitt voru á
þriðjudagskvöld. Verðlaunin fékk Bjartmar fyrir textana á plötunni
Skrýtin veröld sem kom út í fyrra.
Ef rýnt er í myndina virðist þetta helst vera mynd af skriðjökli þar sem hann fellur í sjó fram, gæti sem best verið á Grænlandi. En er það svo, er þetta skriðjökull?
Konudagurinn hefur undanfarin ár verið dagurinn sem starfsemi á
Skriðuklaustri hefur rumskað af miðsvetrarblundi. Engin undantekning
verður gerð á því í ár. Að þessu sinni munu nokkur skáld lesa ljóð eftir
konur og um konur og vonandi fyrir konur einnig.
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar verður næstkomandi sunnudag, 6. mars og að
því tilefni verður poppmessa kl. 14:00 í Vopnafjarðarkirkju. Eftir
guðsþjónustuna verður árleg kaffisala æksulýðsfélagsins til styrkar
hjálparstarfi. Í ár ákváðu unglingarnir að safnað yrðir byggingu
heimilis fyrir munaðarlaus börn í vinasöfnuði okkar í Kaibibich í Kenýa.
Seyðfirðingar telja að fótunum verði kippt undan rekstri
menningarmiðstöðvarinnar Skaftfells með fyrirhuguðum niðurskurði á
opinberum framlögum til miðstöðvarinnar.
Leikfélag LME frumsýnir á föstudaginn söngleikinn „Ástin er diskó, lífið er pönk“ eftir Hallgrím Helgason. Leikstjórn er í höndum Hrafndísar Báru Einarsdóttur.
Íbúar í Hróarstungu á Hérði heldu þorrablót sitt á Þorraþræl, sem er síðasti dagur þorra. Blótið var haldið í Tugubúð sem er félagsheimili sveitarinnar.