Hópferðaleyfishafar: Dómur í máli SSA gegn Sternu sigur fyrir ferðaþjónustuna í landinu
Félag hópferðaleyfishafa fagnar því að lögbanni Sambands sveitarfélaga Austurlandi á akstur Sternu Travel á milli Egilsstaða og Hafnar hafi verið hnekkt. Í tilkynningu samtakanna er dómnum lýst sem miklum sigri fyrir ferðaþjónustuna í landinu og frjálsa samkeppni.„Í honum fellst áfellisdómur yfir einokunartilburðum landshlutasamtaka sveitarfélaga, sem hafa unnið að því á umliðnum árum í samvinnu við Strætó bs. að þjóðnýta almenningssamgöngur hringinn í kringum landið og um leið vegið að starfsemi fjölmargra fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Eftir stendur að fyrirtæki í atvinnugreininni hafa orðið fyrir hundruð milljóna króna tapi – tapi sem ekki sér fyrir endann á," segir í tilkynningunni.
Þar er talað um að „einsdæmi" sé að sveitarfélög „vinni gegn því" að ferðamenn komi inn á svæði þeirra. Því er haldið fram að almenningssamgöngurnar „hrifsi til sín viðskipti við erlenda ferðamenn" og að skattpeningum sé „að þarflausu varið í niðurgreiðslur á fólksflutningum."
Þá er mótmælt að í innanríkisráðuneytinu liggi drög að frumvarpi til laga um farþegaflutninga, sem eftir því sem Austurfrétt kemst næst, felur í sér varnir fyrir almenningssamgöngur sveitarfélaga.
Hæstiréttur hafnaði í síðustu viku staðfestingu á lögbanni sem SSA fékk á akstur Sternu á milli Egilsstaða og Hafnar í júlí árið 2012. SSA hefur einkaleyfi á almenningssamgöngum á svæðinu og taldi akstur Sternu yfir sumarið, með viðkomu á sex stöðum á leiðinni milli Egilsstaða og Hafnar, stríða gegn því.