Ágætur gangur í kolmunnaveiðum
Ágætur gangur er í kolmunnaveiðum en skipin eru flest að veiðum innan færeysku lögsögunnar þótt aflanum sé landað á Austfjörðum. Barði dró Bjart til hafnar í Neskaupstað í gærkvöldi eftir að vélarbilun kom upp í síðarnefnda skipinu.Fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði og í Neskaupstað hafa tekið á móti 35.400 tonnum það sem af er vertíðarinnar. Tveimur þriðju hluta aflans hefur verið landað í Neskaupstað.
Í frétt á vef Síldarvinnslunnar segir að veiðin hafi verið þokkalega góð innan færeysku lögsögunnar. Börkur NK er á leið í land og Beitir og Birtingur hafa fiskað þokkalega.
Á Vopnafirði landaði Lundey tæpum 1600 tonnum í gær. Á vef HB Granda er haft er eftir skipstjóranum að kolmunninn stefni í norður og farinn sé að veiðast heldur smærri fiskur en í fyrri veiðiferðum.
Barði landaði rúmum þrjú hundruð tonnum af blönduðum afla í Neskaupstað í gær. Ufsi var uppistaðan í aflanum.
Þegar Barði var nýkominn til hafnar fréttist af því að bilun hefði komið upp í aðalvél ísfisktogarans Bjarts þar sem hann var að veiðum á Haftinu í Berufjarðarál og fékk Barði það hlutverk að draga hann til hafnar þangað sem þau komu um miðnætti.