Hreppsnefndin hættir öll í Breiðdal
Enginn sitjandi hreppsnefndarmanna í Breiðdalshreppi gefur kost á sér til áframhaldandi setu. Þar verður óhlutbundin kosning í fyrsta sinn í áraraðir.Framboðsfrestur rann út klukkan tólf á hádegi á laugardag. Ekkert framboð barst fyrir tilsettan tíma og því verður óhlutbundin kosning.
Þar sem sá háttur er hafður á geta menn beðist undan kjöri að lokinni setu í jafn langan tíma og þeir hafa þjónað.
Allir sitjandi hreppsnefndarmenn, þau Jónas Bjarki Björnsson, Gunnlaugur Ingólfsson, Ingólfur Finnsson, Kristín Ársælsdóttir og Unnur Björgvinsdóttir nýttu sér þann rétt.
Áður hafði sveitarstjórinn, Páll Baldursson, tilkynnt að hann myndi skipta um starfsvettvang að loknum kosningum.