Tveir hreppsnefndarmenn hætta á Borgarfirði
Tveir fulltrúar í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í hreppsnefnd. Kosningin verður að venju óhlutbundin.Þetta staðfesti Björn Aðalsteinsson, formaður kjörstjórnar, í svari við fyrirspurn Austurfréttar.
Samkvæmt reglum geta hreppsnefndarmenn við slíkar kringumstæður beðist undan kjöri þegar þeir hafa lokið kjörtímabili. Að þessu sinni eru það þau Kristjana Björnsdóttir og Jón S. Sigmarsson, Desjarmýri, sem nýta sér þann rétt.
„Þar sem ég hef ákveðið að nýta þann rétt minn að gefa ekki kost á mér til áframhaldandi setu í hreppsnefnd vil ég þakka Borgfirðingum samstarfið síðustu 12 ár," segir í bókun sem Kristjana lagði fram á síðasta fundi sveitarstjórnar.