Framboðsfundir á Seyðisfirði og Djúpavogi
Íbúar á Seyðisfirði og í Djúpavogshreppi standa fyrir framboðsfundum í dag. Þar gefst kjósendum tækifæri á að bera fram spurningar til framboðanna.Fundurinn á Seyðisfirði hefst klukkan 17:00 og fer fram í Herðubreið. Þar eru þrjú framboð: Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Seyðisfjarðarlistinn.
Fundurinn á Djúpavogi hefst klukkan 20:00 og fer fram í Löngubúð. Þar bjóða fram Framfaralistinn, sem byggir á grunni Nýlistans og Óskalistinn, sem er nýtt framboð.