Fljótsdalur: Eiríkur Kjerúlf kosinn aðalmaður í hreppsnefnd eftir hlutkesti
Varpa þurfti hlutkesti til að fá úr því skorið hverjir yrðu aðalmenn í hreppsnefnd Fljótsdalshrepps. Eiríkur J. Kjerúlf, sem kemur nýr inn í hreppsnefndina, hafði þar betur gegn Magnhildi Björnsdóttur.Á kjörskrá voru 64 einstaklingar, 41 karl og 23 konur. Af þeim greiddu 48 atkvæði eða 75%.
Atkvæði féllu þannig:
Gunnþórunn Ingólfsdóttir 36 atkvæði
Jóhann Þorvarður Ingimarsson 36 atkvæði
Lárus Heiðarsson 35 atkvæði
Anna Jóna Árnmarsdóttir 29 atkvæði
Eiríkur J. Kjerúlf 18 atkvæði
Varamenn:
1. Magnhildur Björnsdóttir, 25 atkvæði sem aðalmaður og fyrsti varamaður
2. Gunnar Gunnarsson, 13 atkvæði sem aðalmaður og 1. – 2. varamaður.
3. Eyjólfur Yngvason 13 atkvæði sem aðalmaður og 1. -3. varamaður.
4. Anna Bryndís Tryggvadóttir, 13 atkvæði sem aðalmaður og 1. – 3. varamaður
5. Egill Gunnarsson, 14 atkvæði sem aðalmaður 1. – 4. varamaður
Eyjólfur vann hlutkesti gegn Önnu Bryndísi um sæti þriðja varamanns.