Héraðslisti byrjar með forseta bæjarstjórnar: Málefnasamningur kynntur síðar
Sigrún Blöndal, oddviti Héraðslistans, byrjar sem forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs í nýjum meirihluta Á—lista, Héraðslista og Sjálfstæðisflokks sem endanlega var myndaður í morgun.Austurfrétt greindi frá því í gærkvöldi að meirihlutasamkomulagið væri að mestu í höfn en tilkynning þess efnis var ekki send fjölmiðlum fyrr en í hádeginu.
Sigrún verður forseti bæjarstjórnar fyrstu tvö árin og á þeim tíma á Héraðslistinn áheyrnarfulltrúa í bæjarráði.
Fulltrúi Héraðslistans skiptir síðan á báðum stöðum við fulltrúa Sjálfstæðisflokks að þeim tíma liðnum.
Gunnar Jónsson, oddviti Á-lista, verður áfram formaður bæjarráðs.
Í tilkynningu segir að málefnasamningur liggi fyrir og hafi verið ræddur í félögunum sem standa að baki framboðunum. Efni hans verði kynntur síðar í vikunni.
„Nánari upplýsingar um áherslur og hugmyndir í samstarfi framboðanna verður kynnt í tengslum við fyrsta bæjarstjórnarfund," segir í tilkynningunni en búið er að ganga frá skiptingu í nefndir.
„Fulltrúar allra lista, sem eiga fulltrúa í bæjarstjórn, hafa samið við Björn Ingimarsson bæjarstjóra um áframhaldandi störf."