Sátu hjá við ráðningu bæjarstjóra
Minnihluti Fjarðalistans í bæjarstjórn Fjarðabyggðar sat hjá þegar ákveðið var að ráða Pál Björgvin Guðmundsson áfram sem bæjarstjóra. Fulltrúar listans vonast samt eftir góðu samstarfi við hann.Gengið var frá ráðningunni á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar fyrir viku. Tillaga um ráðninguna var lögð fram af Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki sem mynda meirihluta.
Í bókun sem Elvar Jónsson, lagði fram fyrir hönd Fjarðalistans, segir að fulltrúar listans telji „eðlilegt að meirihlutinn einn gangi frá ráðningu hans" þar sem ráðningin nú sé hluti af meirihlutasamkomulaginu.
„Bæjarfulltrúar Fjarðalistans vænta áframhaldandi góðs samstarf við Pál Björgvin Guðmundsson."
Páll Björgvin hefur gegnt embættinu frá árinu 2010. Hann er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði og MBA gráðu með áherslu á fjármál sveitarfélaga. Hann var áður fjármálastjóri Fjarðabyggðar árin 2004-2008.