Raforka: Dreifikerfið verður að geta þjónað íbúum fjórðungsins

beltataeki landsnet webSveitastjórnarmenn á Austurlandi hafa áhyggjur af dreifikerfi raforku á svæðinu. Á Héraði vilja menn samstillt átak Austfirðinga til að vinna að úrbótum.

Vakin var athygli á málinu fyrir skemmstu með ályktun fundar stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Þar er ítrekað mikilvægi þess að dreifikerfið sé þannig uppbyggt að það geti þjónað íbúum á fyrirtækjum á svæðinu.

Eins og Austurfrétt hefur greint frá hafa truflanir í kerfinu skaðleg áhrif á rekstur fyrirtækja auk þess sem rafmagn til fyrirtækja verið skert með tilheyrandi afkasta- og tekjutapi.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs tók undir ályktunina á fundi sínum fyrir helgi. Bæjarstjóra var falið að kanna hug annarra sveitarfélaga því ráðið telur æskilegt að sveitarfélög í Norðausturkjördæmi taki sig saman um að þrýsta á um úrbætur.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar