Jakob áfram oddviti Borgarfjarðarhrepps
Jakob Sigurðsson verður áfram oddviti Borgarfjarðarhrepps. Hann fékk flest atkvæði í hreppsnefndarkosningum þar í vor.Kosið var í oddvitaembættið til fjögurra ára á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar og fékk Jakob öll atkvæðin.
Ólafur Hallgrímsson var kjörinn varaoddviti. Þá hefur verið gengið frá ráðningu Jóns Þórðarsonar áfram sem sveitarstjóra, en hann situr einnig í hreppsnefndinni.