Sautján karlar vilja starf sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps
Sautján karlmenn en engin kona sækja um starf sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps. Meðal umsækjenda eru Hrafnkell Lárusson, fyrrverandi héraðsskjalavörður og Ólafur Áki Ragnarsson, verkefnastjóri sveitarstjórnamála hjá Austurbrú.Umsóknarfrestur rann út á mánudag. Þorsteinn Steinsson, sem gegnt hefur starfinu undanfarin sextán ár, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Grundarfjarðar.
Ráðgjafarfyrirtækið Capacent er sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps til ráðgjafar í vinnuferlinu.
Í frétt á vef Vopnafjarðarhrepps segir að vænta megi frétta „innan skamms tíma" af því hver verði næsti sveitarstjóri.
1. Aðalsteinn J. Halldórsson, stjórnsýslufræðingur
2. Ásgeir Einarsson, stjórnmálafræðingur
3. Einar Kristján Jónsson, verkefnastjóri
4. Elvar Ingimundarson, guðfræðingur
5. Hallgrímur Ólafsson, viðskiptafræðingur
6. Heimir Gunnarsson, tæknifræðingur
7. Hrafnkell Lárusson, sagnfræðingur
8. Jóhannes Finnur Halldórsson, sérfræðingur
9. Jóhannes Hermannsson, framkvæmdastjóri
10. Jón Hrói Finnsson, stjórnsýslufræðingur
11. Jónas Vigfússon, MBA og byggingarverkfræðingur
12. Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur
13. Ólafur Áki Ragnarsson, verkefnastjóri
14. Ragnar Hannes Guðmundsson, viðskiptafræðingur
15. Steingrímur Hólmsteinsson, rekstrarstjóri
16. Tryggvi Þór Gunnarsson, fv. bæjarfulltrúi
17. Þorbjörn Ólafsson, markaðsfræðingur