Björgunarsveit kölluð til hjálpar bílstjóra sem fór rangt í vað

vopnafjordur 02052014 0004 webBjörgunarsveitin Vopni var kölluð út í gærkvöldi til aðstoðar bílastjóra sem ók rangt í vaðið í Selá við Mælifell með þeim afleiðingum að vatn komst í vélina og bíllinn drap á sér.

Tveir voru í bílnum og amaði ekkert að fólkinu þegar björgunarsveitin kom að. Bílnum var komið á þurrt og til byggða.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar