Bryndís Ford skólameistari Hússtjórnarskólans
Bryndís Ford verður skólameistari Hússtjórnarskólans á Hallormsstað næsta vetur. Anna Birna Einarsdóttir, sem tók við starfinu um síðustu áramót, sótti í vor um leyfi af persónulegum ástæðum næsta skólaár.Þetta staðfesti Sigrún Blöndal, formaður skólanefndar í svari við fyrirspurn Austurfréttar.
Handverks- og Hússtjórnarskólinn á Hallormsstað er sjálfseignarstofnun á framhaldsskólastigi með áfanga á listnáms- og matvælabraut. Nám við skólann er ein önn og gefur allt að 30 einingar.
Í skólanum er heimavist og mötuneyti fyrir um 20 nemendur.