Féll af vélhjóli á ofsahraða: Sviptur ökuréttindum eftir læknisskoðun
Ökumaður vélhjóls mældist á 220 km/klst. hraða á Jökuldal í dag þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Hann féll af hjólinu á töluverðri ferð en slasaðist lítið.Sjúkrabíll var kallaður á vettvang og fór með vélhjólamanninn á heilsugæsluna á Egilsstöðum til skoðunar, að því fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.
Að henni lokinni var honum fylgt yfir á lögreglustöðina þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.