Sex sóttu um stöðu sérfræðings Háskóla Íslands á Austurlandi
Sex sóttu um starf akademísks sérfræðings við Stofnun rannsóknarsetra Háskóla Íslands á starfsstöð hennar á Austurlandi en umsóknarfresturinn rann út í byrjun vikunnar.Stofnun Rannsóknasetra Háskóla Íslands hyggst koma á fót rannsóknarverkefni til tveggja ára undir yfirskriftinni Maður og náttúra frá og með haustinu 2014, í samvinnu við sveitarfélagið Fljótsdalshérað.
Markmið Stofnunar rannsóknasetra Háskóla Íslands er að skapa aðstöðu til rannsókna á landsbyggðinni, auka möguleika almennings til menntunar og styrkja tengsl Háskóla Íslands við atvinnu- og þjóðlíf. Stofnunin er jafnframt vettvangur samstarfsverkefna háskólans við sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á landsbyggðinni.
Gerð var krafa um að umsækjendur hefðu lokið doktorsprófi en auk sjálfstæðra akademískra rannsókna þarf starfsmaðurinn að geta tekið að sér að leiðbeina háskólanemum í framhaldsnámi.
Sérfræðingurinn verður starfsmaður Háskóla Íslands en hefur starfsaðstöðu á Egilsstöðum í Austurbrú og gegnir starfi sínu þaðan. Búseta á svæðinu er skilyrði. Um fullt starf er að ræða og verður ráðið í starfið til tveggja ára með möguleika á framlengingu.
Umsækjendur eru:
Adriana Josefina Binimelis Saez
Julia Martin
Marin Ív. Karlsson
Sigríður Lára Sigurjónsdóttir
Sigrún Birna Sigurðardóttir
Unnur Birna Karlsdóttir