Davíð Þór skipaður héraðsprestur í Austurlandsprófastsdæmi
Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa Davíð Þór Jónsson, guðfræðing, í embætti héraðsprests í Austurlandsprófastsdæmi. Skipunin tekur gildi frá og með 1. nóvember 2014.Davíð Þór lauk guðfræðinámi árið 2011 og starfaði eftir það sem fræðslufulltrúi Múlaprófastsdæmis í afleysingum.
Frestur til að sækja um embættið rann út 13. ágúst en auk Davíðs Þórs sótti Elvar Ingimundarson, guðfræðingur um.
Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn héraðsnefndar í prófastsdæminu.
Davíð Þór er landskunnur fyrir verk sín sem grínisti, rithöfundur og ritstjóri. Hann er í sambúð með Þórunni Grétu Sigurðardóttur, tónskáldi úr Fellum.
Þorgeir Arason, nýskipaður sóknarprestur í Egilsstaðaprestakalli, gegndi áður stöðu héraðsprests.