Mengun í sjónum við álverið
Áhöfn hafnsögubátsins Vattar kannar nú innihald mengunarbrákar í sjónum við álver Fjarðaáls í Reyðarfirði. Hvorki er vitað hvað er á ferðinni í sjónum né hvaðan efnið kemur.„Það er verið að skoða hvað þetta er en við vitum að þetta er ekki olía," segir Steinþór Pétursson, framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna.
„Vötturinn er á staðnum og við erum að meta hvort við þurfum að grípa til aðgerða."
Brákin, sem er á milli álvershafnarinnar og Hólma, sást úr mötuneyti Fjarðaáls og héldu menn í fyrstu að um olíu væri að ræða.
„Þetta er svört brák sem lítur út eins og olíubrák," segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Fjarðaáls.
Að sögn sjónarvottar er talsverður viðbúnaður á staðnum.
Ekki er heldur ljóst hvaðan mengun kemur. „Við látum ekkert frá okkur í sjóinn svo þetta ætti ekki að vera frá okkur," segir Dagmar.