Töluvert tjón í eldi í vélageymslu: Slökkviliðið tíu mínútur á staðinn
Töluvert tjón varð í eldsvoða í vélageymslu við bæinn Refsstað í Vopnafirði í gærkvöldi. Slökkvistarf gekk þó vel og var slökkviliðið aðeins um tíu mínútur á staðinn.„Slökkvistarfið gekk ljómandi vel en skemman var alelda þegar við komum," segir Sölvi Kristinn Jónsson sem stýrði aðgerðum slökkviliðsins á vettvangi í gær.
Útkallið barst um klukkan hálfa átta og var slökkviliðið komið á staðinn, sem er um tíu kílómetrum fyrir innan þéttbýlið, rúmum tíu mínútum eftir að útkallið barst.
Sölvi segir slökkviliðið fljótlega hafa náð tökum á eldinum en aðstæður voru góðar, veðrið gott og nær enginn vindur. „Við fórum strax í að reyna að slökkva og það sló fljótt á. Við vorum komnir með góð tök á eldinum eftir kortér."
Reyk lagði um tíma yfir íbúðarhúsið á bænum en það kom ekki að sök og eins tókst alveg að verja gamalt fjós við hlið geymslunnar þar sem nokkrir nautgripir voru hýstir.
Á bakvið millivegg inn af vélageymslunni var trésmíðaverkstæði og geymsla. Eldurinn náði aldrei þangað en ummerki eru þar hins vegar eftir sót og reyk.
Auk tíu slökkviliðsmanna voru tíu félagar í björgunarsveitinni Vopna kallaðir til og aðstoðuðu þeir við vatnssöfnun.
Sölvi segir töluvert tjón hafa orðið í eldinum. Geymslan er ónýt og það sem í henni var, meðal annars dráttarvél, snjósleði og verkfræi.
Lögreglan á Eskifirði rannsakar eldsupptök.